Samherji líka skorinn úr skattasnörunni

Ljóst virðist samkvæmt bréfi sem vitnað er til á heimasíðu Samherja að búið sé að hreinsa félagið af öllum grun um brot, nú síðast skattalagabrot. Eftir að sérstakur saksóknari lét kæru frá Seðlabankanum niður falla, mál sem staðið hafði yfir um missera skeið og varðaði skoðun á gjaldeyrismálum var í veðri látið vaka að skatturinn ætti eftir að segja sitt síðasta orð. Það orð hefur nú verið sagt eftir því sem fram kemur í bréfi frá stjórnendum Samherja.

„Samhliða niðurfellingu sendi embætti sérstaks saksóknara afmarkaða þætti til skoðunar hjá skattrannsóknarstjóra. Það er okkur mikið gleðiefni að tilkynna ykkur að í gær barst Samherja afrit af tilkynningu skattrannsóknarstjóra til embættis sérstaks saksóknara þar sem fram kemur að eftir skoðun á málinu hafi skattrannsóknarstjóri ekki séð ástæðu til nokkurra aðgerða af sinni hálfu,“ skrifa stjórnendur Samherja í bréfi til starfsmanna sem birt hefur verið á heimasíðunni.

„Þá hefur umboðsmaður Alþingis tekið undir margt af því sem við höfum gagnrýnt varðandi stjórnsýslu Seðlabankans og bankaráð samþykkt að gerð verði óháð úttekt á stjórnsýslu bankans við framkvæmd gjaldeyriseftirlits og gjaldeyrisrannsókna. Við erum því mjög ánægðir með niðurstöðuna enda er hún í samræmi við það sem við höfum alltaf sagt, að starfsfólk Samherja hafi unnið vel og eftir bestu samvisku þrátt fyrir erfiðar kringumstæður hin síðari ár,“ segja Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson í bréfinu sem lesa má í heild hér.