Útgerðarfélagið Samherji hefur birt myndbandsupptöku úr öryggismyndavél á Kýpur sem sagt er sýna Helga Seljan fréttamann að störfum. Í yfirlýsingu frá útgerðarfélaginu segir að Helgi hafi verið staddur fyrir þremur dögum í borginni Limasol á Kýpur til að ræða við núverandi og fyrrverandi stjórnarmenn Samherja um greiðslur í tengslum við umsvif Samherja í Namibíu.
Umfjöllun Kveiks og Stundarinnar um meintar mútugreiðslur vöktu mikla athygli, er nú verið að rannsaka það má bæði ytra og hér á landi. Samherji hafnar því alfarið að stjórnendur fyrirtækisins hafi verið viðriðnir mútugreiðslur til að komast yfir kvóta þar í landi.
Samherji sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem mynd er birt af manni, sem kann að vera Helgi, fyrir utan lögmannsskrifstofu í Limasol. Segir þar að Helgi sé að reyna einhvers konar fyrirsát, er tekið fram að hann hafi hringt bjöllu en enginn hafi komið til dyra þar sem útgöngubann sé í gildi.
Myndbandið má sjá hér að neðan.