Samherji: 8,3 milljarðar í arð

Eigendur Samherja hf. hafa greitt sér 8,3 milljarða króna í arð síðastliðin fjögur ár á sama tíma og sjávarútvegsfélagið hefur greitt 3,7 milljarða í veiðigjöld til ríkisins.

Þetta kemur fram í DV í dag þar sem segir að arðgreiðslur fyrirtækisins umfram veiðigjöld nemi því 4,6 milljörðum króna á tímabilinu frá og með rekstrarárinu 2011 til og með rekstrarárinu 2014.

Hagnaður Samherja, sem er eignarhaldsfélag um eignarhluti í dóttur- og hlutdeildarfélögum sem flest tengjast sjávarútvegi og vinnslu afurða hér á landi og erlendis, hefur á sama tímabili numið 57,5 milljörðum króna, að því er fram kemur í blaðinu.

Samstæðan hefur á umræddu tímabili greitt 7,9 milljarða í tekjuskatt.