Opnar fyrir gjaldtöku á vegum

Hægt yrði að ráðast í umfangsmikla uppbyggingu á aðal umferðarleiðum út frá höfuðborgarsvæðinu, þ.e. Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut, ef komið verður á sérstakri gjaldtöku á þessum leiðum sem fjármagna myndi framkvæmdir. Slík gjaldtaka myndi flýta mjög uppbyggingu á þessum leiðum sem yrði annars ekki ráðist í á næstu árum með hefðbundnum framlögum til samgöngumála eins og þau hafa verið.

Þetta kom fram í máli Jóns Gunnarssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, á fundi Samtaka ferðaþjónustunnar og Samtaka fjármálafyrirtækja. Hann sagði stórfelld vandamál í vegakerfinu blasa við sem kölluðu á bráðaaðgerðir og benti á að tölur sýndu að um 60 prósent umferðarslysa yrðu á suðvesturhorni landsins.

Hann sagði mörg viðhaldsverkefni framundan og því færi fjarri að unnt væri að fara af stað með öll þau verkefni sem samgönguáætlun kveður á um og finna yrði nýja sýn á markmiðin og nýjar leiðir til að ná þeim.

Ráðherra nefndi helst þrjú verkefni: Að ljúka tvöföldun Reykjanesbrautar á milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og Reykjavíkur, að tvöfalda Suðurlandsveg milli Reykjavíkur og Selfoss og jafnvel austar og með nýrri brú á Ölfusá og tvöföldun Vesturlandsvegar milli Borgarness og Reykjavíkur og þar með tvöföldun Hvalfjarðarganga.

,,Til þess að ráðast í þessar framkvæmdir verðum við að hugsa og framkvæma eftir nýjum leiðum því það er alveg ljóst að við fjármögnum þetta ekki með hefðbundnu ríkisframlagi”, sagði Jón í ávarpinu á fundinum.