Samgöngukerfið er í lamasessi

Gunnar Valur Sveinsson, sem er verkefnastjóri hjá Samtökum ferðaþjónustunnar, segir að þar á bæ hafi fólk verulegr áhyggjur vegna hversu bagalegt ástand vega, gatna og flugvalla er hér á landi.

Mikið vantar á að í samgöngukerfið  fari eins mikið af peningum og áður var gert og þess vegna hefur hallað verulega á. Mikið verk er óunnið og margt er eftir ógert.

Gunnar Valur segir að fjarri fari að nóg sé gert. Til að svo verði þurfi að bæta verulega í. Mikil umferð skapast af ferðamönnum og ekkert bendi til annars en þeim fjölgi á næstu árum, og þá aukist umferðin samhliða.

Viðtal við Gunnar Val verður á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:15 í kvöld.