Gestir Þjóðbrautar í kvöld er Jón Gunnarsson, samgönguráðherra. Jón liggur undir miklu ámæli frá fjölda þingmanna vegna niðurskurðar á samgönguáætlun.
Þrír þingmenn sem láta málið sig mikið varða mæta í þáttinn: Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknar í norðvestur kjördæmi, Teitur Björn Einarsson, sjálfstæðismaður og einnig þingmaður að vestan - þeir sitja í umhverfis og samgöngunefnd- og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, VG og þingmaður að norðan sem situr í fjárlaganefnd.
Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra mætir í lok þáttar til Sölva.
Þjóðbraut er á dagskrá á milli 21 og 22. Endursýnd og einnig á tímaflakkinu.
Gunnar Bragi segist standa við orð sín um að ráðherra hafi svikið landsbyggðina:
Jón Gunnarsson segir í samtali við Sölva að verkefnið sem hann þarf að leysa úr sé risastórt: