Samgönguáætlun samþykkt í nefnd

Samgönguáætlun til næstu 15 ára, með breytingartillögum meirihlutans, hefur verið samþykkt í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Í samþykktinni felst að samgönguráðherra er m.a. gert að leggja fram frumvarp þar sem veggjöld vegna framkvæmda á helstu stofnbrautum í kringum höfuðborgarsvæðið verða útfærð nánar. Vísir.is greinir frá.

Í samgönguáætluninni er að finna tillögu um upptöku veggjalda sem yrðu innheimt á stofnbrautum frá Reykjavík og í öllum jarðgöngum landsins í þeim tilgangi að auka fjármagn til samgöngumála og flýta þar með fyrir brýnum framkvæmdum og bæta við nýjum ef þarf. Ætlunin er að ekki verði rukkuð sértæk veggjöld allt árið um kring. Áætlað er að rukka veggjöldin í takmarkaðan tíma í senn þar til tilteknar framkvæmdir séu að fullu greiddar með þeim.

Í samtali við Vísi segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður nefndarinnar, nefndarálit og samgönguáætlun hafa verið samþykkta með fyrirvara þriggja þingmanna.  Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, þarf nú að fylgja málinu eftir með frumvarpi á vorþingi þar sem veggjöld yrðu útfærð nánar. Eftir það þurfi Alþingi að endurútfæra samgönguáætlunina á haustþingi.

Samþykkt samgönguáætlunarinnar í nefnd í dag þýðir þó að Vegagerðin getur boðið út eða hafið fjölda verkefna sem eru á áætlun hennar á þessu ári.