Samfylkinguna vantar forystu

Vandi Samfylkingarinnar er einfaldlega þessi: Flokkinn vantar forystu. Af því leiðir annað vandamál sem er óskýr og almennur málflutningur og þar af leiðandi óljós stefna.

Þetta er mat varaþingmannsins Ólínu Þorvarðardóttur á fallandi fylgi flokksins síns, en í nýrri færslu á eyjan.is er hún með býsna skorinorða greiningu á óförum flokksins sem mælist nú langtum minni en fyrir kosningarnar 2009 þegar nærri þriðjungur þjóðarinnar greiddi honum atkvæði sitt.

\"Í stað stefnufestu sem er forsenda trúverðugleika í stjórnmálum hafa fulltrúar flokksins farið of almennum orðum um almenn gildi í hverju málinu af öðru frekar en að beita sér af þunga í málum sem varða almannahag,\" skrifar Olína og liggur að vanda ekki á skoðunum sínum: \"Það gerist vart svartara fyrir jafnaðarmannaflokk á tímum þegar það er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að tala skýrum rómi og standa vörð um megingildi jafnaðarstefnunnar varðandi lífskjör almennings, forgangsröðun ríkisfjármála í þágu velferðar, varðstöðu um umhverfissjónarmið og heilbrigða auðlindastefnu svo fátt eitt sé talið af aðkallandi málefnum líðandi stundar.\"

\"Af nógu er að taka,\" segir hún \"nú þegar sótt er að samfélagslegum gildum sem aldrei fyrr: Ásælni erlendra og innlendra peningaafla í auðlindir landsins, aukin misskiping og ójöfnuður í samfélaginu, heilbrigðiskerfi að þrotum komið, laskað skólakerfið, ekkert félagslegt húsnæðiskerfi, kvótakerfið fastara í sessi en nokkru sinni fyrr og stjórnvöld landsins að því er virðist í vasanum á sérhagsmunaöflum í hverju málinu af öðru.\"

Ólína segir að skoðanakannanir sýni að forystumenn Samfylkingarinnar hafi ekki náð eyrum almennings eða trúnaði. Það væri einföldun að kenna eingöngu um málflutningi þeirra fulltrúa sem nú gegni forystu fyrir flokkinn. Samfylkingin hafi gert margvísleg og afdrifarík mistök á síðasta kjörtímabili: \"Þjökuð af erfiðri stjórnarsetu sem á sér enga líka í stjórnmálasögu okkar yfirgaf hún, nauðug viljug, þau þrjú mál sem ítrekað höfðu verið skilgreind sem þau mál sem Samfylkingin bæri helst fyrir brjósti og myndi ljúka: Fiskveiðistjórnunarmálið, stjórnarskrármálið og ESB-umsóknina. Þó að árangur ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur við endurreisn efnahagslífsins hafi verið bæði vanmetinn og vanþakkaður má segja að Samfylkingin hafi uppskorið eins og til var sáð á lokaspretti síðasta kjörtimabils: Íslendingar kusu yfir sig flokkana sem komu þjóðarskútunni á hliðina í hruninu 2008, enda er fólk fljótt að gleyma. Samfylkingin beið afhroð, missti 11 þingmenn af 20 og er nú með 9 manna þingflokk. Ef kosið yrði í dag væri þingflokkurinn enn fámennari, teldi kannski 6 þingmenn,\" skrifar Ólína.

Og niðurstaða hennar er þessi: \"Samfylkingin hefur ekki náð neinni fótfestu eftir síðustu kosningar enda glímir hún við augljósa forystukreppu sem birtist grímulaust á síðasta landsþingi þegar formaðurinn hélt velli með eins atkvæðis mun.\"