Samfylkingin tekur U-beygju í húsnæðismálum: „Besta mál“

Kristrún Frostadóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi kosningar, segir að draga þurfi úr hita á fasteignamarkaðnum. Núverandi stefna að verðhækkanir á húsnæðismarkaði séu almenningi í hag þurfi að breyta. Í myndbandi sem hún birti á Facebook baunar hún á hlutdeildarlán ríkisstjórnarinnar og segir hana aukið á vandann.

Jóhann Óli Eiðsson, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, benti á það á Twitter að flokksfélagar Kristrúnar, Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar og Helga Val Helgadóttir, þingmaður, hafi einmitt stutt hlutdeildarlánin og talað um það á þingi hversu tímabært það úrræði hafi verið.

Jóhann Páll Jóhannsson, annar frambjóðandi Samfylkingarinnar, viðurkennir að Samfylkingin hafi tekið U-beygju í þessu máli:

„Einmitt, Samfylkingin komin með talsmann í húsnæðismálum sem er annarrar skoðunar en Logi og Helga Vala voru þegar frumvarpið um hlutdeildarlán kom fram. Besta mál.“