Samfylkingin stærri en sjálfstæðisflokkur

Sam­fylk­ing­in er stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík sam­kvæmt nýrri könn­un­ Viðskiptaablaðsins og fengi 29,9% en Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn fylg­ir fast á eft­ir með 29%. Meiri­hlut­inn í Reykja­vík held­ur velli sam­kvæmt nýrri könn­un Viðskipta­blaðsins og fengi 13 af 23 borg­ar­full­trú­um en minni­hlut­inn 10.

Pírat­ar fengju 13%, VG 10,3%, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 2,9%, Viðreisn 6,3%, Flokk­ur fólks­ins 3,1% og Miðflokk­ur­inn 4%.

Sam­kvæmt könn­un­inni er meiri­hluti Sam­fylk­ing­ar, Pírata og VG með 53,2% at­kvæða. 

Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ing fengju sam­kvæmt þessu 8 borg­ar­full­trúa hvor, Pírat­ar 3 og VG 2. Miðflokk­ur­inn og Viðreisn einn borg­ar­full­trúa hvor flokk­ur.