Samfylkingin sem leiðir meirihlutann í Reykjavík má bærilega við una í skoðanakönnun Fréttablaðsins sem birt var í morgun en samkvæmt henni fengi hann sjö borgarfulltrúa í krafti 27,2 prósenta fylgis, tveimur fuulltrúum minna en íhaldið sem mælist stærst í borginni með 35,2 prósent og níu menn inni.
Samkvæmt könnuninni dalar Samfylkingin í fylgi frá kosningunum 2014 en þá fékk flokkurinn 31,9 prósenta fylgi. Hann fengi hins vegar miklu meira fylgi en hann hreppti 2010 þegar 19,1 prósent kjósenda galt honum atkvæði sitt.
Í kosningunum 2006 fékk Samfylkingin 26,9 prósenta fylgi. Má af þessu ljóst vera að fylgi flokksins sveiflast mikið á 12 ára tímabili.