Samfylkingin komin niður í 10,7%

Fylgi Samfylkingarinnar hefur sjaldan eða aldrei mælst jafn lítið og í nýjustu mælingu MMR, en þar mælist flokkurinn með 10,7 prósenta fylgi, sem er sama fylgi og Framsókn og Vinstri grænir hafa. Píratar eru enn á siglingu, en Sjálfstæðisflokkur dalar enn.


Fylgi Pírata mældist nú 32,0%, borið saman við 27,4% í síðustu könnun. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 21,9%, borið saman við 22,9% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 10,8%, borið saman við 13,1% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 10,8%, borið saman við 9,8% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,7%, borið saman við 11,4% í síðustu könnun og fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 8,3%, borið saman við 10,3% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%. 


Fylgi við ríkisstjórnina hefur aldrei verið minna, er komið niður í 30% sem er minna fylgi en vinstristjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var með þegar síðasta kjörtímabil var hálfnað.  


Könnunin var gerð frá 16. til 21. apríl.