Sjálfstæðisflokkur nær sér ekki á strik

Fylgi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins í borginni mælist svipað og það var í síðustu kosningum, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Píratar og Vinstri græn bæta við sig fylgi. Framsóknarflokkurinn, sem fékk tvo menn kjörna síðast, næði ekki inn manni.
 

Fylgi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík stendur nánast í stað, ef miðað er við síðustu borgarstjórnarkosningar. Samfylkingin mælist með 31,5 prósent og fengi átta menn kjörna. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 26,3 próesnta fylgi og fengi sjö menn kjörna. Píratar næstum tvöfalda fylgið frá síðustu kosningum, og mælast nú með 11 prósent. Þeir fengju því þrjá menn kjörna ef kosið væri nú. Vinstri græn bæta einnig við sig fylgi, og mælast nú með 10,5 prósent og tvo menn kjörna. Næstum 8 prósent myndu kjósa Viðreisn,