Samfylkingin girti fyrir endurnýjun

Margrét Tryggvadóttir, sem sat á þingi fyrir Hreyfinguna og sóttist eftir þingsæti á lista Samfylkingarinnar að þessu sinni, segir að eitt af meinum Samfylkingarinnar að þessu sinni sé að flokkurinn hafi komið í veg fyrir nauðsynlega endurnýjun á framboðslistum. Furðuleg aldursregla hafi skemmt mikið fyrir.

Margrét féll á aldursreglunni, hún þótti of gömul. Margrét segir að með aldursreglunni hafi verið komið í veg fyrir eðlilega og nauðsynlega endurnýjun á framboðslistum Samfylkingarinnar.

Hið einstaka fall Samfylkingarinnar er mikið. Margrét, sem sóttist eftir sæti í listanum í Kraganum, er ekki viss hvort hún reyni á ný að komast til áhrifa í Samfylkingunni.

Suðvesturkjördæmi var lengi eitt helsta vígi Samfylkingarinnar.

Hér sést hvert  fylgi Samfylkingarinnar hefur verið í síðustu kosningum.

Ár%Þingm
200332,84
200728,44
200932,24
201313,62
20164,80