Framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar samþykkti í gær einróma að boða til landsfundar 4. júní næstkomandi. Í tengslum við fundinn fer fram allsherjaratkvæðagreiðsla um embætti formanns meðal allra flokksmanna, komi fram ósk um það í samræmi við lög flokksins.
Í tilkynningu frá flokknum segir að Samfylkingin sé eini stjórnmálaflokkurinn á Íslandi sem velji formann sinn með beinni þátttöku allra félaga. Óvíst er hvort sitjandi formaður, Árni Páll Árnason hyggist sækjast eftir endurkjöri, en hann mun tilkynna um ákvörðun sína í þeim efnum á morgun.
Framkvæmdastjórn telur að staðan í stjórnmálunum kalli á að sótt verði í kraftinn sem býr í 16.000 félögum í Samfylkingunni um allt land til að veita forystu flokksins umboð og leggja línurnar fyrir kosningar. Landsfundurinn verður notaður til að skerpa á málefnavinnu, ræða saman um kosningaáherslur, og til að sækja fram fyrir jafnaðarstefnuna.
Í tilkynningunni segir að framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar leggi ríka áherslu á aðkomu sjónarmiða jafnaðarmanna að landstjórninni hið fyrsta - og leggur hún sérstaka áherslu á eftirfarandi atriði:.
* Tafarlaust þarf að bæta úr fjárskorti í heilbrigðiskerfinu, sem er að bitna á þjónustu við veikt fólk;
* Gera þarf löngu tímabærar úrbætur í húsnæðismálum til að fólk fái þak yfir höfuðið á viðráðanlegu verði;
* Vinna þarf að raunverulegum kjarabótum fyrir barnafjölskyldur;
* Aldraðir og öryrkjar mega ekki sitja eftir meðan aðrir fá hækkanir;
* Arður af auðlindum verður að skila sér betur til þjóðarinnar;
* Að verndun og nýtingu náttúruauðlinda verði staðið með framtíð Íslands og sjálfbærni að leiðarljósi;
* Og þjóðin á rétt á að fá að ráða framtíð sinni í þjóðaratkvæðagreiðslum um stjórnarskrárbreytingar og ESB.
Landsfundurinn 4. júní verður aukalandsfundur sem boðað er til með löglegum 16 vikna fyrirvara. Það heimilar landsfundarfulltrúum að marka stefnu flokksins, gera lagabreytingar, koma fram með ályktanir og kjósa í laus embætti. Allir þeir sem kjörnir voru á landsfund ársins 2015, eiga sjálfkrafa seturétt auk þess sem heimilda verður leitað til að aðildarfélög fái að tilnefna upp í heildarfjölda þeirra fulltrúa sem þau hafa rétt á samkvæmt lögum flokksins, með það að
markmiði að allir flokksfélagar sem áhuga hafa, geti sótt fundinn. Aukalandsfundur kemur ekki í stað reglulegs landsfundar sem halda skal annað hvert ár og verður næst haldinn í mars 2017.
Í ljósi þessarar ákvörðunar framkvæmdastjórnar verður á næstu dögum valin kjörstjórn sem mun stýra allsherjaratkvæðagreiðslu um embætti formanns og kosningum til annarra embætta sem verða laus á fundinum.