Samkvæmt stórri skoðanakönnun Fréttablaðsins í dag fengi Samfylking 9 borgarfulltrúa og 32.1% atkvæða verði niðurstaða kosninganna í samræmi við könnunina. Það er sama fylgi og fyrir fjórum árum.
Sjálfstæðisflokkur fengi 7 menn kjörna og 26.3% fylgi sem er einnig hið sama og fyrir fjórum árum.
Núverandi meirihluti héldi með 13 af 23 mönnum.
Píratar fengju 2 menn eins og VG. Viðreisn, Miðflokkur og Framsókn fengju 1 mann hver flokkur.
Viðreisn vantar einungis rúmt eitt prósent í viðbót til að fá 2 menn kjörna en þá félli maður Framsóknar út.
Sjá meðf. frétt FB.
http://www.visir.is/g/2018180529316/samfylkingin-er-enn-staerst-i-borginni-