Þegar rýnt er í skoðanakönnunina sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir Morgunblaðið sést að meðal yngstu kjósenda, fólks á aldrinum átján ára til 29 ára sést að Píratar njóta mests fylgis meðal yngstu kjósendanna. Athygli vekur sérlega aum staða Samfylkingarinnar.
Samfylkingin mælist með aðeins eins prósents fylgis meðal yngstu kjósendanna. Átta prósent kjósenda á aldrinum þrjátíu til 44 ára segjast munu kjósa Samfylkinguna, fimm prósent kjósenda á aldrinum 45 yil 59 ára og tíu prósent þeirra sem eru sextíu ára eða eldri.