Samfylkingin bráðum burðarflokkur

Fátækt er þjóðarskömm og það ætti að vera forgangsmál hverrar ríkisstjórnar að ráðast gegn henni,“ sagði Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, í stefnuræðu sinni á landsfundi flokksins síðdegis. Hann segir Samfylkinguna ætla sér að verða burðarflokkur í íslenskum stjórnmálum innan skamms.

„Jafnvel þó að það sé nauðsynlegt að hækka laun og lífeyri þeirra verst settu segir tekjujöfnuður ekki alla söguna. Eitt prósent fólks í heiminum á það sama og 99 prósent og hér á Íslandi eiga fimm prósent Íslendinga jafn mikið og hin 95 prósentin. Þessi ójöfnuður er stöðugt að aukast og færist auk þess á æ færri hendur. Og samhliða þessari gríðarlegu samþjöppun hafa þeir eignamestu hreiðrað um sig á öllum sviðum samfélagsins í einu; í útgerð, bönkum, orkufyrirtækjum, tryggingafélögum, dagblöðum og nú síðast á húsnæðismarkaði. Það má vel kalla næstu ár baráttu um Ísland og stór liður í henni er að tryggja eignarhald þjóðarinnar á sameiginlegum auðlindum í stjórnarskrá og innheimta sanngjarna rentu,“ að því er fréttavefur ruv.is hefur eftir formanninum í dag.

Þar er haft eftir norðanmanninum að sífellt fleiri viðurkenndar alþjóðlegar rannsóknir sýni að þau samfélög sem búi við mikinn jöfnuð vegni betur. Nauðsynlegt sé að ráðast gegn vaxandi ójöfnuði og það verði ekki gert án öflugs jafnaðarflokks.

Logi Már var endurkjörinn formaður Samfylkingarinnar á landsfundinum um helgina með öllum greiddum atkvæðum og Heiða Björg Hilmisdóttir var sömuleiðis endurkjörinn varaformaður hans, en hvorugtt þeirra fékk mótframboð.