Samfylkingin aldrei mælst minni

Fylgi Samfylkingarinnar er nú komið vel niður fyrir þann stuðning sem hún fékk í þingkosningunum fyrir tveimur árum, en þá galt flokkurinn einmitt afhroð og tapaði meira en helminig þingsæta sinna.

Þetta leiðir ný könnun MMR í ljós, en Samfylkingin er þar komin niður í 9,3% fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn stendur í stað frá fyrri könnun í júní, mælist með 23,8% og svipaða sögu er að segja af öðrum flokkum; fylgissveiflur eru litlar, nema ef vera kynni hjá VG sem er nú með 12% í stað 10,%% í asíðasta mánuði.

Píratar mælast með 33,2%, voru með 32,4%, Framsókn með 10,6, var með 10,0%, Björt framtíð er með 5,6%, var með 6,8% en önnur framboð mælast öll undir 2%. 

Fylgi ríkisstjórnarinnar er á svipuðu róli og áður, rétt um 30% landsmanna styðja hana, sem er jafn lítill stuðningur og ríkisstjórn vinstriflokkanna naut á miðju síðasta kjörtímabili.