MMR hefur birt könnun um fylgi stjórnmálaflokka. Samfylkingin og VG mælast nú með jafnt fylgi eða 7,8% hvor flokkur.
Fylgi Pírata minnkaði um 1,6 prósentustig frá síðustu könnun og er nú 37%
Stuðningur við ríkisstjórnina mælist 32,7% og fer vaxandi.
Fylgi Bjartrar Framtíðar mælist nú 4,2%
MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 23. febrúar til 1. mars 2016. Samkvæmt könnuninni þá mælist fylgi Pírata nú 37% sem er minnkun um 1,6 prósentustig frá síðustu könnun (sem lauk þann 10. febrúar síðastliðinn). Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna mælist nú 36,2% og þokast heldur upp á við frá síðustu könnun.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,4% borið saman við 21,6% í síðustu könnun (10. febrúar) og 21,1% í könnuninni þar áður (1. febrúar). Fylgi Framsóknarflokksins mældist 12,8% borið saman við 10,8% í síðustu könnun og 12,2% í könnuninni þar áður. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 7,8% borið saman við 10,2% í síðustu könnun og 11,0% þar áður. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 7,8% borið saman við 9,5% í síðustu könnun og 9,4% þar áður. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist 4,2% borið saman við 3,7% í síðustu könnun og 4,4% þar áður. Fylgi annarra flokka mældist um og undir 1%.