Á fjölmennum félagsfundi Samfylkingarinnar á Akureyri í gærkvöld var samþykkt ályktun um að landsfundi verði flýtt og fari fram fyrir vorið. Þar með er brugðist við ákalli sem fyrst kom fram hjá Ólínu Þorvarðardóttur þingkonu í gær.
„Undanfarin misseri hefur fylgi við Samfylkinguna verið alls óviðunandi. Núverandi forystu Samfylkingarinnar hefur ekki tekist að skapa traust kjósenda á flokknum. Til að ná Samfylkingunni upp úr þeirri djúpu lægð sem hún er nú í telur Samfylkingin á Akureyri nauðsynlegt að boðað verði til landsfundar fyrir vorið. Þar gefist forystunni tækifæri til að endurnýja umboð sitt eða nýr formaður og forysta verði kjörin. Það má ekki seinna vera til að nýrri forystu gefist tími til að undirbúa málefni, efla starf flokksins og stuðla að endurnýjun fyrir næstu alþingiskosningar,“ segir í ályktun Samfylkingarfélagsins á Akureyri.
„Jafnaðarstefnan á mikinn stuðning meðal Íslendinga og jafnaðarmenn á Íslandi þurfa að endurvinna traust kjósenda. Til að svo megi verða er nauðsynlegt að kjósendur trúi því að Samfylkingin standi vörð um hefðbundin baráttumál jafnaðarmanna.
Samfylkingin á Akureyri hvetur önnur samfylkingarfélög til að taka undir þessa ályktun. Í stöðu eins og nú er uppi verða almennir flokksmenn að láta til sín taka þegar forystunni hefur mistekist að halda baráttumálunum á lofti og knýja fram nauðsynlegar þjóðfélagsbreytingar fyrir almenning á Íslandi,“ segir í ályktuninni sem Jóhann Jónsson, formaður Samfylkingarinnar á Akureyri sendi Hringbraut rétt í þessu.
Innvígðir samfylkingarmenn sem Hringbraut hefur rætt við í dag telja að staða Árna Páls Árnasonar formanns „veikist nú með hverri klukkustundinni“ eins og einn þeirra orðaði það. Fylgiskönnun nú fyrir nokkrum dögum sem mældi 9,2% hafi verið kornið sem fyllti mælinn en stjórnmálafræðingar hafa einnig bent á að ekki sé sjálfgefið að fylgi þokist upp við formannsskipti og er m.a. vísað til Bjartrar framtíðar í þeim efnum.
Nöfn Helga Hjörvarr, Oddnýjar G. Harðardóttur, Ólínu og Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur eru nefnd í umræðu um nýjan formann en í raun virðist enginn einn þingmaður í umræðunni skara fram úr sem líklegur bjargvættur eftir því sem heimildir Hringbrautar herma innan flokksins.