Samfélagsmiðlar taka yfir

Samfélagsmiðlarnir Facebook og Twitter hafa í síauknum mæli tekið við af fréttamiðlum sem helsta uppspretta frétta hjá Bandaríkjamönnum. 63% segjast nálgast helstu fréttir og upplýsingar í gegnum annan hvorn samskiptamiðilinn og láta þar við sitja. 

Þetta kemur fram í nýrri rannsókn á vegum Pew Research Center. Þar kemur meðal annars fram að hlutfall Bandaríkjamanna sem fullnægja fréttaþörf sinni einvörðungu í gegnum samfélagsmiðlana fer hækkandi með árunum; árið 2013 voru 52% Bandaríkjamanna sem sögðust nálgast helstu fréttir og upplýsingar í gegnum Twitter og 47% í gegnum Facebook samanborið við 63% árið 2015. 

Báðir samfélagsmiðlarnir virðast því að mörgu leyti vera að taka við sem helsta uppspretta frétta fyrir hinn almenna borgara. Miðlarnir tveir eru þó missterkir þegar kemur að því að deila fréttum. Þannig var hlutfall notenda sem sagðist fylgjast með nýjum og stórum fréttum á Twitter tvöfalt hærra en hjá þeim sem sagðist fylgjast með stórviðburðum í gegnum Facebook. 

Notendur Facebook voru hins vegar líklegri en notendur Twitter til að deila og tjá sig um fréttir á samfélagsmiðlinum, en notendur Twitter voru líklegri til að fylgja fréttaveitum í gegnum samfélagsmiðilinn.