Hart var tekist á í kappræðum stjórnmálaleiðtoga á RÚV í gærkvöldi en þar stigu á stokk leiðtogar allra þeirra tíu framboða sem bjóða sig fram í Alþingiskosningunum 25. september.
Spurt var út í stefnu framboðanna, áherslur þeirra í kosningum en líka hver séu brýnustu málin á nýju kjörtímabili.
Líkt og vanalega var fólki heitt í hamsi á samfélagsmiðlum en deildu margir skoðunum sínum og formönnum flokkanna tíu. Glúmur Baldvinsson, oddviti Frjálslynda lýðræðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, var stjarna kvöldsins á samfélagsmiðlum og hefur fólk deilt ógrynni af myndum af honum eftir gærkvöldið.
Ekki voru allir sammála um hverjir stóðu sig best en sjónvarpsmaðurinn Gísli Marteinn hrósaði Katrínu Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra fyrir frammistöðu sína og sagði þau bera af.
Verður erfiður mánuður fyrir þau sem er sérlega illa við Katrínu og Bjarna. Þau eru einfaldlega mjög góð í umræðuþáttum; málefnaleg, ekki rætin, tala ekki niður til fólks og svara þeim spurningum sem er beint til þeirra. (Mörg önnur góð líka en B&K eru þau sem spjót beinast að).
— Gísli Marteinn (@gislimarteinn) September 1, 2021
Þá veltu einhverjir fyrir sér hvort Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins væri næsti James Bond.
þá er búið að tilkynna hver verður næsti bond pic.twitter.com/6PdbQFjvpW
— אזוב (@egillm) September 1, 2021
Klæðaburður frambjóðenda var einnig að umtali eftir umræðurnar.
Hver er best klæddi formaðurinn í kvöld? #kosningar21
— Sigursteinn Sigurðz 🇵🇸 (@gjafi_sigur) August 31, 2021
Næsta ríkisstjórn útfrá besta klæðaburði:
— Kristinn Þór Sigurjónsson (@kiddi_s) August 31, 2021
Þorgerður Katrín -Viðreisn
Katrín Jak - VG
Bjarni Ben - Sjálfstæðis
Og svo til að hafa rödd skynseminnar með - Sigurð Inga - Framsókn #kosningar21 #RÚV
Það vakti athygli hjá Rafni Steingrímssyni að Viðreisn gerir ESB ekki skilyrði fyrir ríkisstjórnarsamstarfi.
Gat ekki skilið þetta svar @thorgkatrin betur en að Viðreisn geri ESB ekki að skilyrði fyrir ríkisstjórnarsamstarfi.
— Rafn Steingrímsson (@rafnsteingrims) August 31, 2021
Katrín Jakobsdóttir lenti í vandræðum með mikrafóninn er hún hélt eldræðu og voru einhverjir ánægður með ræðu Katrínar og töldu það ástæðuna fyrir hljóðvandræðunum.
Það er svo mikið realtalk hjá @katrinjak að mic'inn bræddi úr sér #21
— Kári Gautason (@karigauta) August 31, 2021