\"Það er sama hvar maður potar tánum í umræður á samfélagsmiðlum, alltaf birtast sömu menn og vita allt um allt. Þeir skilja sálarlíf Ólafs Ragnars Grímssonar og Jeremy Corbyn jafn vel og þeir þekkja innviði Manchester United.\"
Þetta skrifar rithöfundurinn Guðmundur S. Brynjólfsson í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is og er á að giska mæðulegur, því það er svo að hans mati að United kunna þessir kauðar í þaula líkt og uppbyggingu ISIS – sem þeir, vel að merkja, kannast jafn vel við og Þjóðkirkjuna.
\"Kirkjuskipan kunna þeir upp á tíu, líkt og Lissabon-sáttmálann og Schengen-samkomulagið,\" skrifar rithöfundurinn áfram og dregur seiminn, ef rýnt er vel á milli línanna.
Hann bætir við: \"Flóttamannavandamálið analýsera þessir menn af fádæma greind. Og ekki flaska þeir á almennum lögskýringum við hvert það dómsmál sem upp kemur á milli þess sem þeir greina bókmenntir, bíómyndir og kynhegðun manna. Allt vita þeir um mannkynssöguna og kvótakerfið, vaxtastigið í Finnlandi og ostagerð. Og hryðjuverkaógnina. Fjölmiðlun og hundarækt. Svikamiðla og sharia-lög.\"
En Guðmundi er ekki skemmt: \"Satt að segja þreytir hún mig, þessi tegund manna,\" skrifar hann linum fingrum..
Hann kveðst vera takmarkaðri en þessir sjálfvitar og taka bara, í fáfræði sinni og einfaldleik, undir með síra Valdimar Briem í sálminum kunna:
Kom, huggari, mig hugga þú,
kom, hönd, og bind um sárin,
kom, dögg, og svala sálu nú,
kom, sól, og þerra tárin,
kom, hjartans heilsulind,
kom, heilög fyrirmynd,
kom, ljós, og lýstu mér,
kom, líf, er ævin þver,
kom, eilífð, bak við árin.
Og honum finnst sumsé einfaldara og heppilegara að treysta bara Guði – já og Valdimari sáluga, en þessum sjálfskipuðu vitringum sem leysa margoft á degi hverjum allt það sem á vegi þeirra ... en, án árangurs.