Samfélagið þarf vigdísi því hún þorir

 

 

Sumir fá alveg svakalega yfirhalningu í fjölmiðlum og formaður fjárlaganefndar Alþingis, Vigdís Hauksdóttir, er í þeim hópi. Þetta sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í viðtali á Rás 2 í morgun.

Vísað var til síðasta upphlaups um einelti og Landspítalann. Guðlaugur Þór sagðist hafa tekið eftir því á facebook í gær að fólk noti „stór og ljót orð“. Ákveðnir stjórnmálamenn og einstaklingar yrðu fyrir því og margir vildu ekki taka þátt í þjóðfélagsumæðu vegna illrar umræðu.

Guðlaugur Þór sagði Vigdísi skemmtilegan karakter en ætti alls ekki að koma nálægt málsháttum. Það gæfi lífinu gildi að hafa karakter eins og Vigdísi.

Spurður hvort heppilegt sé að hafa manneskju sem vekur svo oft reiði sem formann mikilvægrar þingnefndar, ræddi Guðlaugur Þór að ef ætti að breyta einhverju í samfélaginu yrði að hafa einstaklinga sem þora og Vigdís væri þeirrar gerðar.