"Samfélag eins og Akranes verður hálflamað þegar svo sorgleg tíðindi berast,“ segir Eðvarð Ingólfsson, sóknarprestur Akraneskirkju, en 17 ára stúlka úr bænum lést á gjörgæsludeild aðfaranótt mánudags eftir að hafa tekið inn e-töflu, að því er talið er.
Séra Eðvarð ræðir málið við Morgunblaðið í dag og segir það mikinn harmleik og mikla sorg sem því fylgi. "Það eru ýmsar spurningar sem vakna og sorgin er verkefni til þess að takast á við. Hún átti marga vini og skyldmenni hér á Skaganum,“ segir Eðvarð við blaðið og bætir við: "Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvernig staðið verður að bænastund en í komið hafa fram óskir um bænastund fyrir vini hinnar látnu,“ segir hann.
"Þegar fólk stendur saman sem einn maður í mótlæti og sorg þá er alltaf mikill styrkur í því. Mikilvægast er að fólk standi saman,“ segir sóknarpresturinn en hann ásamt öðrum presti Akraneskirkju hefur hlúð að ættingjum og vinum hinnar látnu í samstarfi við áfallateymi sjúkrahússins. Hann segir margar hafa leitað til þeirra í safnaðarheimilið eða á skrifstofu kirkjunnar vegna atviksins.