Sameinast gegn sjöllum í garðabæ

Björt framtíð, Samfylking, Píratar, Viðreisn og Vinstri græn ætla að sameinast um eitt framboð í Garðabæ í kosningunum í vor. Nýr sameiginlegur listi fimm stjórnmálaflokka auk óháðra verður kynntur síðdegis á morgun undir kjörorðinu „Virkjum lýðræðið“.

Sjálfstæðisflokkurinn er nú með sjö af 11 bæjarfulltrúum, Björt framtíð með tvo, Samfylkingin einn og Listi fólksins í bænum einn.

María Grétarsdóttir sem leiddi Lista fólksins í bænum undir listabókstafnum M í síðustu kosningum, mun leiða lista Miðflokksins undir sama listabókstaf að þessu sinni. Útlit er því fyrir að framboðin í Garðabæ verði þrjú talsins.