Ráðherra í ríkisstjórn Theresa May hefur sagt að ekki sé vitað að svo stöddu hve stór eða smár hluti sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins (ESB) verður tekin inn í breska löggjöf eftir útgöngu Breta úr ESB.
Þetta er haft eftir Andreu Leadsom sem er umhverfisráðherra í ríkisstjórn Theresa May forsætisráðherra.
Rétt er að geta þess að aðild Stóra-Bretlands að sameigninlegri sjávarútvegstefnu ESB kallar á að Bretar lagi stjórnkerfi fiskveiða sinna að ESB-stefnunni.
Nema að samið hafi verið um undnaþágur eða sérstök aðlögunarákvæði.
Við útgöngu Breta úr ESB verða þeir ekki lengur þátttakendur í sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni. Ekki verða þeir heldur aðilar að sérstökum fiskveiðisamningum sem ESB hefur gert við þriðju lönd eða fjölþjóðasamtök.
Ljóst má vera að áform Breta eftir útgöngu úr ESB eru þau að móta stefnu í sjávarútvegsmálum sem hentar Bretum. Þar með heyra söguni til bæði kvótaúthlutun ESB og réttu fiskiskipa frá öðrum ríkjum ESB til þess að veiða í efnahagslögsögu Stóra-Bretlands.
Bretar eru nú að komast í sömu spor og Íslendingar - að skapa skilning á sérhagsmunum Breta meðal ráðamanna ESB ríkja á borð við Spán og Portúgal og Frakkland.
Það kann að reynast Bretum dýrkeypt. Hætt er við að ekki náist hagfelld niðurstaða um sjávarútvegsmál í Brexit viðræðunum sem eru framundan.
rtá
Nánar www.bbc.com