Sambandið þitt gæti verið í hættu: bjarni segir frá 4 ára reglunni - „einmitt þá verða áföllin“

„Eitt sem ég hef nýlega lært af fólki og tel eiga erindi við almenning er Fjögurra ára reglan. Það sem upphaflega vakti athygli mína í hjónaráðgjöfinni var það hve algengt það virðist vera að hjón steyti á skeri í sambandi sínu einmitt þegar yngsta barnið er á þeim aldri.“

Þetta segir séra Bjarni Karlsson í pistli í Fréttablaðinu en hans hlutverk er líka einmitt að aðstoða hjón og sambýlisfólk. Hann kveðst hafa komist að því að hætta sé á ferðum í sambandinu sem miðast við fjögurra ára regluna eins og hann kallar það. Bjarni segir:

„Ég tel að einhver stærstu tímamót í lífi hverrar móður verði þegar um fjögur ár eru liðin frá fæðingu yngsta barnsins. [...] Ég tek fram að þessi kenning er byggð á reynslu en ekki rannsóknum en jafnframt á samtölum við annað fagfólk sem staðfestir að það taki konu um fjögur ár að endurheimta sjálfa sig til líkama og sálar eftir barnsburð.“

Bætir Bjarni við að pör mættu vera meðvituð um þessi „þöglu“ tímamót sem verða í lífi konu þegar yngsta barnið nær 4 ára aldri. Bjarni segir:

„Þá vaknar hjá mörgum sterk þrá eftir því að lifa af alefli, finna rödd sína heyrast og eiga innihaldsríkt ástarsamband. En einmitt á sama skeiði eru hjón gjarnan komin í þægilega rútínu með svo margt, makinn áttar sig ekki á breyttum forsendum og telur hjónabandið komið í varanlegan farveg,“ segir Bjarni og bætir við að lokum:

„Einmitt þá verða áföllin. Hjónaband er skip sem er smíðað á siglingu.“