Samanlagður hagnaður 33 ma.kr.

Hagn­aður Lands­bank­ans hf. á árinu 2017 nam 19,8 millj­örðum króna eftir skatta, sam­an­borið við 16,6 millj­arða króna á árinu 2016. Þetta kemur fram í Kjarnanum í morgun. 

Hagn­aður Íslands­banka nam 13,2 millj­örð­um, og því er sam­an­lagður hagn­aður rík­is­bank­anna 33 millj­arðar króna, eða sem nemur tæp­lega 95 þús­und krónum á hvern íbúa lands­ins.

Lands­bank­inn er rúm­lega 98 pró­sent í eigu rík­is­ins en Íslands­banki er 100 pró­sent í eigu rík­is­ins.

AUGLÝSING

Lands­bank­inn til­kynnti um upp­gjör sitt í gær, en áður höfðu bæði Íslands­banki og Arion banki til­kynnt um sín upp­gjör.

Arion banki hagn­að­ist um 14,4 millj­arða í fyrra, og er sam­an­lagður hagn­aður stóru bank­anna því 47,4 millj­arðar króna, sem er um 136 þús­und krónur á hvern íbúa lands­ins.

Arð­semi eigin fjár Lands­bank­ans eftir skatta var 8,2% á árinu 2017, sam­an­borið við 6,6% árið 2016, að því er segir í til­kynn­ing­u. 

Vöxtur í lánum umfram hag­vöxt

Hreinar vaxta­tekjur juk­ust um rúma 1,6 millj­arða króna milli ára og námu 36,3 millj­örðum króna árið 2017. Hreinar þjón­ustu­tekjur Lands­bank­ans hækk­uðu um 8% á milli ára og námu 8,4 millj­örðum króna. Tekju­aukn­ing er einkum vegna auk­inna umsvifa í mark­aðsvið­skiptum og eigna­stýr­ingu. Aðrar rekstr­ar­tekjur námu 7 millj­örðum króna og hækk­uðu um 7% á milli ára. Skýrist hækk­unin einkum af jákvæðum gang­virð­is­breyt­ingum óskráðra hluta­bréfa. Jákvæð virð­is­breyt­ing útlána nam 1,8 millj­arði króna sam­an­borið við nei­kvæða virð­is­breyt­ingu upp á 318 millj­ónir króna árið 2016, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá bank­an­um.

Heild­ar­eignir Lands­bank­ans juk­ust um 81,7 millj­arða króna á milli ára og námu í árs­lok 2017 alls 1.193 millj­örðum króna. Til sam­an­burðar námu heild­ar­eignir hins rík­is­bank­ans 1.036 millj­örðum króna.

Útlán juk­ust um 8,5% milli ára, eða um 72 millj­arða króna, en það er tölu­vert umfram hag­vöxt, sam­kvæmt bráða­birgða­tölum um hann.

Í árs­lok 2017 voru inn­lán frá við­skipta­vinum 605 millj­arðar króna, sam­an­borið við 590 millj­arða króna í árs­lok 2016. „Eigið fé Lands­bank­ans í árs­lok 2017 var 246,1 millj­arður króna sam­an­borið við 251,2 millj­arða króna í árs­lok 2016. Á árinu 2017 greiddi Lands­bank­inn 24,8 millj­arða króna í arð til hlut­hafa. Eig­in­fjár­hlut­fall Lands­bank­ans í árs­lok 2017 var 26,7%, sam­an­borið við 30,2% í árs­lok 2016. Fjár­mála­eft­ir­litið gerir 21,4% heild­ar­kröfu um eig­in­fjár­grunn Lands­bank­ans,“ að því er segir í til­kynn­ingu frá bank­an­um.