Samherji greiddi sex til níu sinnum hærri upphæð í kvótakostnað í Namibíu fyrir marklílstonnið, miðað við það sem félagið greiðir fyrir á Íslandi. Þetta kemur fram í Stundinni í dag, þar sem reiknaðar eru meintar mútugreiðslur félagsins inn í upphæðina um kvótakostnað Samherja í Namibíu.
Líkt og Hringbraut greindi frá í gær brást Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, ókvæða við þegar Viðreisn, Píratar og Samfylking óskuðu eftir skýrslubeiðni frá Kristjáni Þór Júlíussyni, sjávarútvegsráðherra, um samanburð á veiðigjöldum Samherja hérlendis og í Namibíu.
Sjá einnig: Bjarni í uppnámi á Alþingi vegna skýrslubeiðni um Samherja: „Hérna er þyrlað upp pólitísku moldviðri“
Hefur Stundin eftir uppljóstraranum Jóhannesi Stefánssyni, fyrrverandi starfsmanni Samherja, að makrílstonnið hafi kostað á bilinu 180 til 240 dollara í Namibíu en það fór hæst í 310 dollara árið 2014. Á gengi dagsins eru 180 dollarar tæplega 23 þúsund krónur og 240 dollarar um 30 þúsund.
Upphæðin sem Samherji greiddi í veiðgjöld fyrir hvert tonn af makríl á Íslandi árið 2019 voru hins vegar 3550 krónur, að því er segir á vefsíðu Fiskistofu. Veiðigjöldin fyrir kílóverðið af makríl hér á landi árið 2019 voru 3.55 krónur og 3.35 krónur árið 2018.
Ætti Samherji að greiða sama verð fyrir makrílinn á Íslandi og hann gerði í Namibíu, þyrfti veiðigjaldið að hækka úr 3.55 krónum upp í 23 til 30 þúsund krónur per kíló, sem er 6.5 föld og 8.6 föld hækkun.