Salvör: „ég tók þessa ákvörðun með hag fjölskyldunnar í huga“

Kynningarfundur á vegum herskólans European Security Academy Iceland um námskeið í vopnaburði og öryggisgæslu átti að fara fram á Grand Hótel í dag klukkan eitt. Ekkert varð af þeim fundi. Fram hefur komið að meðal þeirra sem standa fyrir hinum umdeilda fundi er Vakur. Sá félagsskapur hefur, eins og Egill Helgason bendir á á Eyjunni, flutt inn Róbert Spencer og gerði tilraunir til að fá Tommy Robinson til Íslands. Tommy var alltaf á leiðinni en sprungið dekk einn daginn og andlát hinn daginn kom í veg fyrir að hann héldi fyrirlestur hér á landi. Á Stundinni var rætt við fólk sem hafði ætlað sér að sækja fundinn og sagði einn viðmælandi Stundarinnar að fjöldi fólks hér a landi hefði áhyggjur af ólgunni í Evrópu og það væri nauðsynlegt að kenna Íslendingum að verjast.

„Þetta er komið á þann stað í Evrópu. Við sjáum að þetta,“ sagði viðmælandi Stundarinnar og átti við innflytjendur, „er að breiðast út hingað og fólk vill vera tilbúið.“

Salvör Lilja Brandsdóttir, hótelstjóri Grand Hótel tók þá ákvörðun seint í gærkvöldi að úthýsa herskólanum. Þegar Hringbraut náði tali af Salvöru var hún í óða önn að undirbúa fermingarveislu sem fram fer á Grand Hótel í dag.

„Ég tók þessa ákvörðun með hag fjölskyldunnar í huga,“ segir Salvör og bætir við: „Mér fannst námskeið um vopnaburð og fermingarveisla engan veginn passa saman. Ég gat ekki hugsað mér rask á þessum heilagasta degi fjölskyldunnar. Það var nákvæmlega ástæðan og gerði útslagið. Ég ákvað að þessi samkoma yrði ekki í mínu húsi.“

Þeir sem ætluðu að standa að viðburðinum hafa nú fengið endurgreitt en samkvæmt heimildum Hringbrautar ekki stendur til að greiða nokkrar skaðabætur fyrir að blása kynningarfundinn af. Margir hafa fagnað þessari ákvörðun hótelstjórans. Egill Helgason segir á Eyjunni:

„Maður tekur ofan fyrir stjórnendum Grand hótels að hafa úthýst kynningarfundi sem átti meðal annars að fjalla um vopnaburð – með útsendurum fyrirbæris sem nefnist European Security Academy.

Eins og kom fram í pistli hér á síðunni í gær eru hryðjuverk hægri öfgamanna vaxandi vandamál – fjöldamorðin á Nýja Sjálandi leiddu í ljós að ekki einu sinni friðsæl ríki eru óhult. Þetta er nokkuð sem lögregluyfirvöld þurfa að fylgjast með – sem og hinni vaxandi hatursumræðu sem verður sífellt grófari og ofsafengnari.

Við getum ímyndað okkur – hefðu til dæmis samtök eins og No Borders auglýst meðal félaga sinna námskeið í vopnaburði. Þá hefðu nú aldeilis heyrst hljóð úr horni.“

Stjórnendur námskeiðsins ákváðu eftir að þeim var úthýst af Grand Hótel að færa sig yfir á veitingastaðinn Sólon.  Stjórnendur á Sólon ákváðu á síðustu stundu að hleypa þeim ekki inn með kynninguna.