Söngkonan vinsæla Salka Sól Eyfeld hefur verið svo gott sem tekjulaus á meðan á heimsfaraldri stendur. Enda lítið um tónleikahald og leikhússýningar í samkomubanni.
Salka vakti athygli á því á samfélagsmiðlum að iðulega hringja samtök og fyrirtæki í listafólk og biðja þá um að gefa vinnuna sína. Það gildi einnig þegar téð listafólk er með öllu tekjulaust.
„Nú er íþróttalið búið að biðja mig um að gefa vinnuna mína til að styrkja félagið, í gær hringdi banki og bað mig um að hlaupa í góðgerðahlaupi og á meðan sé ég fram á að vera nánast tekjulaus það sem eftir er af árinu,“ skrifaði Salka í tísti. „Ah fyrirtak.“
Nú er íþróttalið búið að biðja mig um að gefa vinnuna mína til að styrkja félagið, í gær hringdi banki og bað mig um að hlaupa í góðgerðahlaupi og á meðan sé ég fram á að vera nánast tekjulaus það sem eftir er af árinu. Ah fyrirtak.
— Salka Sól Eyfeld (@salkadelasol) August 19, 2020
Má ekki syngja fyrir aðdéndur
Um það bil vika er síðan hún hvatti fylgjendur sína til að styrkja sig með því að fjárfesta í bókinni Unu uppskriftir sem inniheldur prjónauppskriftir sem Salka bjó sjálf til.
„Nenniði að styrkja mig og kaupa Unu uppskriftir frá stroff.is á meðan ég má ekki syngja fyrir ykkur.“ Ljóst er að hart er í ári fyrir listamenn sem geta ekki framfleytt sér á meðan heimsfaraldur geisar.
Salka og eiginmaður hennar Arnar Freyr Frostason eignuðust sitt fyrsta barn í byrjun árs. Það hefur því lítill tími gefist til að spila á tónleikum milli kornabarnsins og samkomutakmarka.