Sálfræðiþjónusta falli undir sí

Um þriðjungur þingmanna Alþingis munu leggja fram frumvarp um að almenn sálfræðiþjónusta falli undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands. Aðilar úr nær öllum stjórnmálaflokkum Alþingis eru flutningsmenn frumvarpsins, sem hefur þó ekki ennþá verið lagt fram eða kostnaðarmetið. Fréttablaðið greinir frá.

Eitt höfuðmarkmiðið með frumvarpinu er að tryggja aðgengi fólks að sálfræðiþjónustu, þar sem það sé lykilatriði þegar kemur að því að greina kvilla snemma og tryggja nauðsynlega meðferð. Áætlað er að frumvarpið verði lagt fram á næstunni.

Fréttablaðið greinir frá því að ólíkt annarri heilbrigðisþjónustu er sálfræðiþjónusta fyrst og fremst í boði á starfsstofum sjálfstætt starfandi sálfræðinga, án opinbers stuðnings við þá sem þurfa á þjónustunni að halda. Flutningsmenn frumvarpsins telja ekki ásættanlegt að fólk fari ekki til sálfræðings vegna þess að það sé hreinlega of dýrt.

„Með þessu frumvarpi erum við að horfa til nútímans. Það á að vera jafngilt að leita sér lækninga hvort sem það er fyrir andleg veikindi eða líkamleg. Þess vegna viljum við fella sálfræðiþjónustu undir greiðsluþátttökukerfið,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar og einn helsti flutningsmaður frumvarpsins, í samtali við Fréttablaðið.

„Eins og ég skil málið þá er tillagan sú að Sjúkratryggingum verið heimilt að semja við sálfræðinga um kaup á tiltekinni þjónustu. Það er í sjálfu sér jákvætt að þingið fái að glíma við þessa tillögu. Það þarf hins vegar að vera vel skilgreint hvers konar þjónusta er keypt, hvert skipulag hennar á að vera og hvaða gæði þjónustan á að uppfylla. Ríkið sem kaupandi heilbrigðisþjónustu þarf að hafa skýra stefnu um hvað skuli kaupa og ráða ferðinni í þeim efnum. Það sjónarmið verður skoðað gaumgæfilega í umræðum um heilbrigðisstefnu til framtíðar á næstu vikum,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í samtali við Fréttablaðið.