Frá og með 1. janúar verður öllum sjálfvirkum almenningssalernum í miðbæ Reykjavíkur lokað. Borgaryfirvöld ákváðu að endurnýja ekki samning við E Hermannsson (áður AFA JCDecaux ehf) um rekstur almenningssalernanna.
Þau verða fjarlægð á næstu dögum. Rekstur salernanna hófst fyrir tæpum 20 árum, en um 100.000 manns nota þau árlega.
Ljóst er að með þessari ákvörðun borgarinnar mun þjónusta við borgarbúa og ferðamenn skerðast verulega. Sérstaklega er viðbúið að ferðamenn leiti í staðinn inn á veitingastaði, verslanir og önnur þjónustufyrirtæki. Salernin við Hlemm og Hallgrímskirkju hafa verið mikið notuð, enda ekki önnur almenningssalerni við þessa fjölsóttu staði.
Salerninu í Hljómskálagarðinum, sem var komið fyrir vegna íbúakosningar, verður einnig lokað.