Salek mun halda áfram

Samstarf heild­ar­sam­taka á vinnu­markaði sem SALEK hóp­urinn vinnur að mun halda áfram, segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ en miðstjórn ASÍ ályktaði í gær að það væru svik myndi frumvarp verða samþykkt um að hækka lífeyrisaldur í 70 ár á almennum markaði á 12 árum í stað 24. Frumvarp félagsmálaráðherra um lífeyrisréttindi setti starfið í uppnám. En ákvæðið var dregið út úr frumvarpinu sem var samþykkt í dag á Alþingi.

Salek hópurinn gerði hlé á samstarfinu og óljóst var um framhaldið í gær. Hópinn skipa fulltrúar helstu launþegasamtaka landsins, auk atvinnurekenda, sveitarfélaga og ríkisins. Markmiðið er að koma á samsvarandi kjarasamningamódeli og viðgengst á öðrum Norðulöndum, tryggja jafn­ræði í kjaraþróun og byggja þannig á sam­eig­in­legr­i launa­stefnu. Ekki síst að jafna líf­eyr­is­rétt­indi á almenna og opinbera markaðnum.

Gylfi sagði að margt þyrfti að gera til að breyta samfélagsmyndinni, svo sem að styrkja velferðarkefið verulega svo eitthvað sé nefnt. Augljóslega sé samfélagsgerðin ólík þeirri á norðurlöndum og til að taka upp norrænt kjarasamningamódel þyrfti að huga að því.

Í slíku módeli yrði komið í veg fyrir svokallað höfrungahlaup á launamarkaði og meiri stöðugleiki kæmist á í efnahagslífinu. Að auki er markmiðið að launahækkanir skili sér til frambúðar en brenni ekki upp í verðbólgu.