Fresta varð stórum fundi sem halda átti 7. maí í Hörpu um Salek-samkomulagið.
Guðmundur Þ. Ragnarsson, formaður VM, sagði á Þjóðbraut á Hringbraut í gærkvöld, að óvissa ríki um hvort tækist að ná Salek-samkomulaginu. Flestir aðilar á vinnumarkaði verði að koma að, eigi samkomulagið að verða að veruleika.
Guðmundur lagði áherslu á að hér yrði að laga vinnu í kjarasamningum að því sem þekkist á hinum Norðurlöndunum.