Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, lektor í félagsfræði við Háskóla Íslands og sérfræðingur í vinnumarkaði, segir á Þjóðbraut að þó SALEK samkomulagið gangi fram hér á landi, dugi það hvergi til að hér verði samskonar vinnustaðamódel og gengur og gerist á Norðurlöndunum.
Til þess vanti margt. Til dæmis vaxtakjör, frír eða gjaldítill aðgangur að heilbrigðiskerfi, barnabætur og margt annað. Gylfi segir vinnumarkaðinn hér ólíkan því sem tíðkast þar.
Gylfi segir að hér séu hlutfallslega langtum fleiri verkalýðsfélög og áhrif fámennra stétta séu því meiri hér en þar og það sé nokkuð sem verði að skoða.
Áhugafólki um þessi mál er bent á að horfa á Þjóðbraut í kvöld, hún er dagskrá milli 21:00 og 21:30.