Salan ekki sögð á ábyrgð eyglóar

Matthías Imsland, aðstoðarmaður Eyglóar Harðardóttur félagsmálaráðherra, segir að Íbúðalánasjóður sé sjálfstæð stofnun og varði það sjálfstæði sölu eigna líkt og annað.

Þetta segir aðstoðarmaður ráðherra vegna fyrirspurnar Hringbrautar. Fram kom í máli fyrrverandi þingmanns í gær að Eygló væri að selja \"kippur af húsum til braskara\" en rót þeirrar fréttar er að Íbúðalánasjóður hefur selt Heimavöllum ehf, á annað hundrað íbúða, flestar eru á Austurlandi. Sigurjón Þórðarson, fyrrum þigmaður, telur að borgarar kunni að skaðast á því að auðmenn kaupi klasa af eignum í þeim tilgangi að nýta til ferðaþjónustu. Fyrir vikið dragist húsnæðiskostir almennra borgara saman og að engu verði haft að íbúar geti greitt viðráðanlega leigu fyrir íbúðahúsnæði.

\"Þá er vert að benda á að þessi sala fór fram í opnu og gegnsæju söluferði hjá ILS þar sem hæsta tilboði var tekið,\" segir Matthías Imsland.