Sala nýrra bíla á Íslandi er komin í námunda við það sem best var á árunum fyrir bankahrun, en þó gætir óneitanlega meiri varfærni á meðal kaupenda en áður að sögn bílasala sem hringbraut.is hefur verið í sambandi við síðustu daga. Þrennt helst hér í hendur að sögn þeirra sem gerst þekkja; fólk ekur minna en áður fyrr sem sparar viðhald bílanna, þeir eru þess utan orðnir sterkari og endingarbetri en fyrr á tíð sem enn skýrir ástæðu þess að allur almenningur er ófeimnari við að aka bifreiðum sem eru komnar á annan tuginn í aldri.
Engu að síður er augljóst að hagur bifreiðaumboðanna er að vænkast stórum: Talið er að sala nýrra bíla hafi aukist um tugi prósenta hjá einstökum bílaumboðum á milli ára og lítur út fyrir að 12 þúsund nýir bílar muni seljast á árinu. „Lækkun á virðisaukaskatti og sterkara gengi krónu hefur leitt til lægra bílaverðs. Lokahnykkurinn er síðan leiðréttingin sem loks er komin á hreint og ljóst að hún hefur veruleg áhrif á margar fjölskyldur,“ segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, í nýlegu samtali við Morgunblaðið.
Söluaukningin hefur einnig verið mikil hjá Toyota á Íslandi sem seldi 195 nýja bíla í janúar. Það er 44% aukning á milli ára. „Ég held að fólk sé að verða sannfærðara um að nauðsynlegur stöðugleiki sé að skapast. Það er farið að trúa því að hlutirnir séu að lagast,“ segir Páll Þorsteinsson, upplýsingafulltrúi Toyota, og bætir við að viðskiptavinir séu nú ákveðnari í kaupum þegar þeir komi í slíkum erindum í bílaumboðið.