Sala jólabjórs upp um 150% á 10 árum

Sala á jólabjór hér á landi hefur heldur betur tekið kipp á síðustu tíu árum en þá hefur hún aukist um 150%. Athygli vekur hvað íslenski bjórinn er í mikilli sókn þegar þetta breytta neyslumynstur er skoðað.

Vínbúðirnar munu sleja 34 tegundir af jólabjór í ár að því er fram kemur í frétt Fréttablaðsins í dag um sölu á þessum gula miði sem virðist renna ljúflega niður í maga landsmanna, einkanlega þegar líða tekur að jólum.

Sala á jólabjór í ár hefst 13. desember og segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR við blaðið í dag að starfsmenn hafi þegar orðið varir við nokkra spennu meðal viðskiptavina sem margir bíði eftir því að hátíðarbjórinn komi í verslanir.

Vínbúðirnar hafa boðið upp á jólabjór allt frá 1989.