Sala fasteigna tók kipp í lok ársins og nýja árið lítur vel út fyrir fasteignakaupendur

Líflegt hefur verið á fasteignamarkaðinum á árinu sem var að líða og margir þættir hafa áhrif á kaup og sölu á fasteignamarkaðinum.  Sjöfn Þórðar heimsækir Ingólf Geir Gissurason löggiltan fasteignasala á fasteignasölunni Valhöll og fær hann til að gera upp árið 2019 á fasteignamarkaðinum og spá í stöðuna á nýju ári.  „Sala fasteigna tók kipp í lok árs eftir ákveðna kyrrstöðu síðastliðið sumar, það var eins og fólk heldi að sér höndum um tíma,“ segir Ingólfur Geir.  Meira um stöðuna á fasteignamarkaðinum í þættinum í kvöld.

Þátturinn Fasteignir & Heimili verður á dagskrá í kvöld klukkan 20.30 og aftur klukkan 22.30.