"Ég er almennt á móti boðum og bönnum og tel ekki að Ríkið eigi að skipta sér af smásöluverslun sem er betur komin í höndum einkaaðila," sagði Jón Gerald Sullenberger í viðtali í þættinum Atvinnulífið á sjónvarpsstöðinni Hringbraut sem frumsýndur var 3. mars, en þar sagði hann jafnframt að hann liti á rauðvín og hvítvín sem hvert annað krydd í matseld. "Ég hef búið lengi í Bandaríkjunum og þekki hvernig þetta gengur fyrir sig þar. Með því að afnema einkaleyfi á áfengissölu ÁTVR tel ég að úrval víntegunda muni aukast og Kostur mun gefa léttvínum og bjór sérstakt pláss sem verður aðgreint frá sjálfri matvörunni, nái þetta frumvarp fram að ganga. En við verðum að sjálfsögðu að bíða og sjá hvort frumvarpið fer í gegn og hvernig reglurnar verða á þessu öllu saman en ég mun að sjálfsögðu fagna þessu máli ef það fer í gegn," sagði kaupmaðurinn í dagvöruversluninni Kosti sem var gestur í nýjasta þætti Atvinnulífsins sem hægt er að nálgast í heild sinni undir flipanum sjónvarp á hringbraut.is.
Sala áfengis í kjörbúðum til góðs
Fleiri fréttir
Nýjast