Saksóknari: stórfelld brot í spron-máli

Sækjandinn í aðalmeðferð sér­staks sak­sókn­ara á hendur fyrr­ver­andi stjórn­ar­mönn­um og spari­sjóðsstjóra SPRON, sem hófst í Héraðsdómi Reykja­vík­ur í dag, telur brot ákærðu vera stórfelld. Það þýðir í tilviki sakfellingar minnst tveggja ára fangelsisdóm.


Ákæru eru fjór­ir fyrr­ver­andi stjórn­ar­menn SPRON, þau Ari Berg­mann Ein­ars­son, Jó­hann Ásgeir Bald­urs, Mar­grét Guðmunds­dótt­ir og Rann­veig Rist, sem og fyrr­ver­andi sparis­sjóðstjóri SPRON, Guðmund­ur Örn Hauks­son, en þau eru öll sökuð um að hafa mis­notað aðstöðu sína hjá spari­sjóðnum og stefnt fé hans í veru­lega hættu með því að fara út fyr­ir heim­ild­ir til lán­veit­inga þegar þau samþykktu á stjórn­ar­fundi SPRON í sept­em­ber 2008 að veita hluta­fé­lag­inu Ex­istu tveggja millj­arða króna pen­inga­markaðslán án trygg­inga og án þess að meta greiðslu­getu og eigna­stöðu fé­lags­ins í sam­ræmi við út­lána­regl­ur spari­sjóðsins.


Fram kom fyrir dómi í dag að lánið var fram­lengt fjór­um sinn­um og hafi að lokum ekki verið greitt til baka. Seg­ir í ákæru sér­staks sak­sókn­ara og það verði að telja það spari­sjóðnum að fullu eða að veru­legu leyti glatað. Þessi umboðssvik sé að mati saksóknara stórfelld brot.


Ákærðu hafa öll neitað sök.