Saknar uppbyggingar í heilbrigðiskerfi

Forseti Alþýðusambands Íslands segir megnið af viðbótarfjármagni í heilbrigðiskerfið vera vegna kostnaðarauka af kjarasamningum lækna og fleiri og að eftir eigi að gera ráð fyrir afleiðingum gerðardóms, þannig að væntanlega þurfi enn meira fé.
 

Þetta kemur fram á fréttavef RÚV í kvöld, en þar segir að framlög til heilbrigðismála aukist verulega milli ára í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segi raunaukningu á velferðarþjónustu hinsvegar mjög litla. Engar tillögur séu til dæmis um hvernig koma eigi til móts við þá sem þurfi að greiða mjög háan kostnað vegna heimsókna til lækna, en stjórnvöld hafi ætlað að hraða vinnu við að setja þak á útgjöld fjölskyldna vegna læknisþjónustu. Hann segir ekki gert nóg á þessu sviði.

„Við erum að gera of lítið í því að veita þjónustu og við erum að gera of mikið af því að rukka fyrir þá þjónustu sem er veitt, en það fara hins vegar mjög miklir fjármunir í það að efna kjarasamninga lækna og þeirra sem hafa samið og væntanlega verðum við að gera ráð fyrir því að það þurfi enn meiri fjármuni vegna niðurstöðu gerðardóms. Þannig að þarna er auðvitað bara aukinn kostnaður við að veita þjónustuna, en það er ekki meiri þjónusta. Þessi aukning í heilbrigðiskerfinu er innan við 3% í magni, þetta er fyrst og fremst aukinn kostnaður, segir forseti ASÍ við RÚv í kvöld.