Saknar bræðra sinna

Þorvaldur Gylfason er einn kunnasti hagfræðingur þjóðarinnar, sískrifandi um það sem betur má fara í okkar samfélagi, hefur samið á að giska 100 tónverk og er sonur Gylfa Þ. Gíslasonar, eins kunnasta ráðamanns þjóðarinnar sem margir dá fyrir verk sín fyrr á tíð.

Þorvaldur var gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli í gærkvöld.

Í ítarlegu viðtali ræðir hann missi beggja bræðra sinna, kærleiksríkt heimilislífið á Aragötunni í uppvextinum, aðdáunarverðan stjórnmálaferil föður síns, afrek Íslendinga á tónlistarsviðinu, efnahagshrunið, hagfræðina, það sem hann kallar valdarán Alþingis vegna nýrrar stjórnarskrár og ýmislegt fleira.

Viðtalið í heild sinni er að finna hér: