Sakir vigdísar þýði áralangt fangelsi

Björn Valur Gíslason, varaformaður VG, segir Vigdísi Hauksdóttur þingmann Framsóknarflokksins komast upp með það svo til óáreitt að saka fólk, einstaklinga eða hópa fólks um alvarlega glæpi. Brotin sem Vigdís saki fólk um að hafa framið séu svo alvarleg að viðurlög séu áralangt fangelsi ef brotin sannist.

Ekki hafi Vigdís gert þetta bara einu sinni heldur árum saman, segir Björn Valur á bloggsíðu sinni. “Oftast nær eru það opinberir starfsmenn, starfsfólk ráðuneyta og stofnana sem fyrir þessu verða og geri þeir tilraun til að bera hönd yfir höfuð sér er þeim sagt að þau hafi ekki heimild til þess. Ásakanir Vigdísar Hauksdóttur á hendur starfsfólks stofnana ríkisins og embættismanna eru svo alvarlegar að ég get ekki ímyndað mér að þetta fólk muni sitja lengur þegjandi undir þessum rógburði.”

Varaformaður VG segir að ásakanir Vigdísar snerti svo til alla kafla almennra hegningarlaga.

“Enginn þingmaður eða ráðherra hefur enn sem komið er tekið undir með Vigdísi Hauksdóttur um þessi mál. Eini ráðherrann sem hefur tjáð sig um þau er fjármálaráðherra sem hefur réttilega bent Vigdísi á að kæra þau mál til lögreglunnar hafi hún grun eða sannanir fyrir að eigi þar heima.”

Björn Valur heldur áfram: #Hvað segir Guðlaugur Þór Þórðarson nánasti samstarfsmaður Vigdíar á þingi um þessi mál? Er hann Vigdísis sammála um ásakanir hennar á hendur opinberum starfsmönnum?

Er það rétt sem Vigdís Hauksdóttir segir að forseti Alþingis sé að fylgja fyrir mælum hennar um að opinbera einhver skjöl sem eiga að sanna glæpsamlegt athæfi starfsfólks fjármálaráðuneytisins?

Hvað finns þingflokksflokksformanni sjálfstæðisflokksins um ásakanir Vigdísar? Hafa þessi mál verið rædd í þingflokki sjálfstæðisflokksins og hver er afstaða þess flokks til ásakanana?

Síðast en ekki síst: Hvers vegna er ekki drifið í að kæra fólk og rannsaka störf þess eftir áralangar ásakanir á hendur þeim? Hvað kemur í veg fyrir það? Við hvern er Vigdís Hauksdóttir að rífast? Hún er í stjórnarliði sem hefur góðan meirihluta á þingi og er því í færum til að rannsaka hvað sem er.

Það er óboðlegt með öllu að þingmenn beri sakir á fólk líkt og Vigdís Hauksdóttir hefur gert. Við það er ekki hægt að búa í nokkru lýðræðisríki,” skrifar Björn Valur en pistil hans má lesa í heild hér.

Í 49. grein hegningarlaga segir: \"Hver, sem gerist sekur um rangan uppljóstur til yfirvalds um að refsiverður verknaður hafi verið framinn, svo og hver sá, sem ber fram rangar kærur við [forsetann],1) Alþingi, dómstóla eða yfirvald, skal sæta sektum eða varðhaldi, eða fangelsi allt að einu ári, ef miklar sakir eru.\"