Sakar yfirmann um áreitni og segir upp

Sigrún Helga Lund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, hefur sagt starfi sínu lausu. Ástæðuna segir hún í stöðuuppfærslu á Facebook vera lítil sem engin viðbrögð stjórnenda skólans við kvörtunum hennar vegna erfiðra samskipta og kynferðislegs háttalags af hendi yfirmanns hennar í starfsmannaviðtali. Frá þessu er greint á Kjarnanum.

Í stöðuuppfærslunni segir Sigrún að eftir að ástandið hafi versnað ört hafi hún löðrungað manninn til að svara fyrir sig. Loks hafi hún fundið styrk til að kæra málið til siðanefndar Háskóla Íslands sem hafi kveðið upp dóm í júlí og komist að þeirri niðurstöðu að yfirmaðurinn, Sigurður Yngvi Kristinsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, hafi brotið þrjár greinar siðareglna HÍ.

Sigrún segir einnig að hún hafi fengið fregnir af því að siðanefnd hafi fundað með Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands, eftir að hún komst að niðurstöðu en að ekkert hafi gerst síðan þá. Því hafi hún ekki getað séð fram á að starfa annað starfsár á sama vinnustað og hafi því sagt starfi sínu lausu.

DV greinir frá því að Sigrún hefur þegar ráðið sig í fullt starf hjá Íslenskri erfðagreiningu. Hún hafði áður starfað í hálfu starfi þar en Kári Stefánsson forstjóri bauð henni fullt starf, sem hún þáði með þökkum.

Sigurður Yngvi hafnar ásökununum

DV greinir einnig frá því að Sigurður Yngvi hafi sent frá yfirlýsingu, þar sem hann hafnar ásökununum alfarið. „Eftir far­sælt sam­starf komu upp erf­ið­leikar á milli okk­ar, og ég neydd­ist á end­anum til að víkja henni úr rann­sókna­hóp mín­um. Í kjöl­farið gerði hún sig seka um til­efn­is­lausa lík­ams­árás á skrif­stofu minni í vitna við­ur­vist og hafði í hót­unum við mig. Sá atburður var mér og öðru sam­starfs­fólki okkar mikið áfall“, segir Sig­urð­ur.

„Eins og sést af ákvörð­un­ar­orðum nefnd­ar­innar er öllum kæru­at­riðum hafnað eða vísað frá nema einu kæru­at­riði sem varð­aði breyt­ingu á skipan stýri­hóps, sem fól í sér að Sig­rún fór úr hon­um, sem siða­nefndin taldi þó ekki alvar­legt, og var Sig­rún tekin aftur inn í stýri­hóp­inn síð­ar. Öllum ásök­unum um áreitni var því hafnað enda eng­inn fótur fyrir slíkum ásök­un­um. Mér þykir leitt að Sigrún kjósi að fara fram með rangar ásakanir í minn garð en óska henni alls hins besta“, segir Sigurður enn fremur í yfirlýsingunni.

Ákvörðunarorð siðanefndarinnar voru eftirfarandi samkvæmt Sigurði: Siða­nefnd Háskóla Íslands vísar frá þeim kæru­at­riðum sem fjallað er um undir liðum 1 og 2 þar sem kæran telst í þessum til­vikum hafa verið til­efn­is­laus, sbr. 4. gr. starfs­reglna siða­nefnd­ar. Í lið 3 er fjallað um greinar 1.3.1 og 1.3.4., í siða­reglum Háskóla Íslands. Nið­ur­staða nefnd­ar­innar er að ekki sé um brot að ræða að hluta, en brot að hluta auk brots á jafn­ræð­is­reglu 1.3.2. Brotið telst ekki alvar­legt. Þá er hluta þessa liðar vísað frá vegna skorts á upp­lýs­ing­um, sbr. 9. gr. starfs­reglna nefnd­ar­inn­ar. Liðum 4 og 5 er vísað frá þar sem máls­grund­völlur er ekki til stað­ar, sbr. 9. gr. starfs­reglna nefnd­ar­inn­ar.

Rektor sendir frá sér yfirlýsingu

Fréttablaðið greinir frá því að Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, hafi einnig sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins.

Yfirlýsingin í heild hljóðar svo:

Yfirlýsing rektors Háskóla Íslands í tilefni af umfjöllun fjölmiðla um uppsögn prófessors.

Háskóli Íslands leggur ríka áherslu á að til staðar séu úrræði fyrir starfsmenn og nemendur sem telja á sér brotið. Háskólinn starfrækir m.a. sérstaka siðanefnd, fagráð um viðbrögð við kynbundinni og kynferðislegri áreitni og kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi, og viðbragðsteymi vegna eineltis og annars ofbeldis.

Fram hefur komið í fjölmiðlum að tiltekinn starfsmaður hafi lagt fram kæru vegna framkomu annars starfsmanns til siðanefndar Háskóla Íslands en niðurstaða nefndarinnar lá fyrir í júlí 2018. Samkvæmt starfsreglum siðanefndar Háskóla Íslands eru skriflegar niðurstöður siðanefndar afhentar málsaðilum og sendar rektor til vitundar og varðveislu. Í kjölfar hverrar niðurstöðu siðanefndar metur rektor hvort tilefni sé til frekari aðgerða af hálfu Háskólans.

Rektor getur ekki tjáð sig efnislega um málefni einstakra starfsmanna eða ákvarðanir siðanefndar, sem eru trúnaðarmál. Rétt er að taka fram að Háskóli Íslands hefur, á undanförnum misserum, lagt áherslu á að bæta enn frekar ferla og úrræði til að bregðast við kvörtunum og tilkynningum um ofbeldi og áreitni af hvaða tagi sem er, enda verður slíkt aldrei liðið innan Háskóla Íslands. 

Ljóst að sópa eigi málinu undir teppið

Fréttablaðið greinir einnig frá því að Sigrún segi það ljóst að rektor hyggist sópa máli hennar undir teppið. Segir hún ódýrt af háskólanum að fórna sér og sínu mannorði og segist ekki hafa ætlað að nafngreina Sigurð Yngva Kristinsson.

„Hann velur að fara fram með þessum hætti. Ég er mjög hneyksluð á þessum viðbrögðum en hann getur auðvitað valið að segja ósatt til að fegra sinn hlut. Hann þarf greinilega ekki að óttast viðbrögð háskólarektors,“ segir Sigrún m.a. í bréfi til fjölmiðla.

Sigrún fundaði með rektor ásamt Kára Stefánssyni í gær og segir hún að skýrt hafi verið á fundinum að rektor hafi aldrei skoðað úrskurðinn eða sett sig inn í málið. Hún seg­ir að fram hafi komið í máli rektors í dag að þar sem málið hafi ekki verðskuldað form­lega áminn­ingu gæti hann ekki brugðist við með öðrum hætti. 

„Það er alvarlegt mál að háskólarektor lítilsvirði siðanefndina með þessum hætti. Ef það hefur engar afleiðingar í för með sér að brjóta reglurnar hefur siðanefndin enga þýðingu“, segir Sigrún auk þess.