Sakar verkalýðshreyfinguna um leikaraskap

Friðjón Friðjónsson, almannatengill, sakaði verkalýðsfélögin um leikaraskap í kringum kjaraviðræðurnar. Hann tók mið af útreikningum Fréttablaðsins og segir að stéttarfélögin láti sem kröfurnar snúist eingöngu um að hækka laun hinna lægst launuðu en að kröfurnar séu raunverulega hækkun „yfir línuna og hæstu krónutölurnar eins og rútubílstjórar og flutningabílstjórar og svo framvegis þannig að þetta er allt saman bara einhver leikaraskapur. Þegar Vilhjálmur Birgisson labbaði út úr stjórnarráðinu, þetta var bara..veitið manninum Edduna eða eitthvað. Hættið þessu.“

Þetta sagði Friðjón í þjóðmálaþættinum Sprengisandi en hann var gestur ásamt Drífu Snædal, forseta ASÍ, Þorsteini Víglundssyni, þingmanni Viðreisnar og Oddnýju Harðardóttur, þingmanni Samfylkingarinnar en til umræðu voru yfirstandi kjaraviðræður og ástandið á vinnumarkaði.

Nánar á

http://www.visir.is/g/2019190229407