Sakar þingmann um minnimáttarkennd

\"Viljum við að íslensk stjórnmálaumræða snúist um fjölskyldumeðlimi stjórnmálamanna? Fjölskyldumeðlimi sem eru ekki þátttakendur í stjórnmálum. Þurfa stjórnmálamenn framvegis að gera ráð fyrir því að fjölskyldur þeirra verði fyrir áreiti og dylgjum vegna þess að makinn er í pólitík? Mitt svar er nei. Til þess að svo megi verða þarf ógæfufólkið í pólitík að gaumgæfa vel framgöngu sína.\"


Svo skrifar þingmaður Framsóknarflokksins, Þorsteinn Sæmundsson, í skoðanagrein sem birst hefur á visir.is.


Þar fer Þorsteinn háðuglegum orðum um þá sem hafa gagnrýnt forsætisráðherrahjónin vegna Tortólamálsins svokallaða. Þingmaðurinn minnist ekki einu orði á að aðrir þingmenn hafa farið fram á afsögn Sigmundar Davíðs og að vantrauststillaga verður borin fram ef hann skýrir ekki mál sitt betur eða bregst við.


\"Ég hef fylgst með atburðum á Íslandi undanfarna daga úr fjarlægð. Ég verð að viðurkenna að mér blöskrar umræðan sem nú fer fram um eiginkonu forsætisráðherra og eignir hennar. Sá sem hóf umræðuna veit reyndar ekki hvað nauðasamningur er eins og fram kom í umræðum um stöðugleikaframlög á Alþingi Íslendinga. Samt situr hann í bankastjórn Seðlabankans. Sá sem hóf umræðuna veit heldur ekki muninn á kröfuhafa og innistæðueiganda ef dæma má af málflutningi hans. Samt situr hann í bankastjórn Seðlabankans. Þó nokkuð vandræðaleg staðreynd en þó meira alvarleg,\" skrifar Þorsteinn framsóknarþingmaður.


Þorsteinn ræðir minnimáttarkennd Vilhjálms Bjarnasonar þingmanns Sjálfstæðisflokks sem gagnrýnt hefur forsætisráðherra og vísar til umræðu í Vikulokunum á Rás 1. Segir svo þetta:
\"Það hefur lengi verið alþekkt staðreynd að eiginkona forsætisráðherra er velefnuð. Það er einnig lýðum ljóst hvernig eignirnar eru til komnar. Það hefur aldrei hvílt leynd yfir þessari staðreynd. Það liggur fyrir að skattar hafa verið greiddir á Íslandi vegna þessara eigna alla tíð. Það liggur fyrir að eiginkona forstætisráðherra hefur ef eitthvað er tapað eignum vegna þeirra aðgerða sem eiginmaður hennar hefur staðið fyrir. En hælbítarnir gefast ekki upp enda eru pólísk samtök þeirra við það að þurrkast út. Það ætti ekki að koma neinum á óvart sem fylgst hefur með framgöngu þeirra undanfarin ár.\"